Um okkur
Um okkur
Altis ehf var stofnað um 1974 á Laugarvatni og hét þá FÍFILL s/f. Markmiðið með stofnun þess var að útvega íþróttakennurum íþróttatæki af bestu gerð, en fram að þeim tíma höfðu þeir ákaflega lítið val um tæki sem keypt voru til kennslunnar.
Fyrirtækið flutti til Hafnarfjarðar 1979 og nokkrum árum síðar breyttist nafn þess í P. ÓLAFSSON ehf. Starfsemi þess hefur vaxið hægt og bítandi og fleiri vöruflokkar bæst við. Apríl 2008 var nafni P.Ólafsson ehf breytt í Altis ehf.
Í dag erum við þess umkomnir að bjóða búnað af bestu gerð í íþróttahús allt frá gólfi og upp í loft, þ.e. föst og laus tæki, stór og smá. Einnig útvegum við fjölmargt fyrir sund, leikskóla, endurhæfingu og einstaklinga.
