Leikvallayfirborð (gúmmí)
Leikvallayfirborð sem lagt er út á gólf inni og úti. Þykkt efnisins getur verið breytilegt, frá 10mm uppí 50-60mm, þykkt fer einnig eftir fallhæð ef sett er á leiksvæði.
Efnið er mikið notað í hlaupabrautir. Kostir þessa efnis eru m.a. samskeytalaus, mjúk (mikið öryggi á leiksvæðum), getur drenað vatni í gegnum sig, hægt að móta í allskonar form, hóla eða brekkur. Margir litir í boði, einnig hægt að blanda saman litum.
Hvar má setja efnið:
Hlaupabrautir, leiksvæði, kringum sundlaugar, gangbrautir, körfuboltavelli og fl.


